Stubbahús – Útiöskubakki úr ryðfríu áli
Verð frá 38.585 kr.
Vandað og endingargott stubbahús úr ryðfríu póleruðu áli. Hentar vel við innganga, á útisvæðum og þar sem útireykingar eru leyfðar. Fæst í mismunandi stærðum og litum. Einnig fylgir öryggislykill til þess að losa og tæma stubbahúsið og hægt er að fá fleiri lykla ef þess er óskað. Við smíðum húsin sjálf á Íslandi.
Stærðir:
- Lítið 6 x 25 cm – hentar vel fyrir einbýli, svalir eða sumarhús
- Staðlað 6 x 50 cm – hentar vel fyrir flest fyrirtæki og hótel
- Stórt 10 x 50 cm – hentar vel fyrir utan stærri búðir, hótel og verslunarmiðstöðvar
- Standur 10 x 90 cm – hentar vel fyrir utan stærri búðir, hótel og verslunarmiðstöðvar
Litir:
- Pólerað silfur
- Svart
- Gyllt
- Aðrir litir (Sérpöntun)
Ath öll verð eru með vsk.
Eiginleikar
- Mjög góð ending
- Ryðgar ekki
- Eldþolin (geta ekki brunnið)
- Einföld tæming
- Öryggislykill fylgir












