Um okkur

Isotech

Um framleiðandann

IsoTec ehf. er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í vinnslu á málmhlutum og vönduðum lausnum fyrir iðnað og fyrirtæki frá árinu 1997. Fyrirtækið hannar og framleiðir meðal annars Stubbahúsin, sem eru þekkt fyrir styrk, endingu og notendavæna hönnun.

Með eigin verkstæði og nákvæma CNC-vélavinnslu tryggir IsoTech áreiðanlega framleiðslu og gæði í hverri einingu. Allar vörur eru hannaðar með íslenskar aðstæður í huga, hvort sem það er vindur, raki eða ryk.

isotech.is

Stubbahúsin

Framleiðsla stubbahúsana

Stubbahús eru engin nýjung, þau hafa verið framleidd og þróuð af Isotech í yfir áratug og hafa sannað sig við fjölbreyttar aðstæður um land allt. Þau má finna við opinberar byggingar, fyrirtæki, verslanir og fjölbýlishús, þar sem þörf er á hreinni og skipulagðri aðstöðu fyrir reykingafólk.

Frá upphafi hefur markmiðið verið skýrt: að bjóða upp á endingargóða og snyrtilega lausn sem eykur umgengni og bætir ásýnd útisvæða. Einfalt, sterkt og traust hús úr ryðfríu áli, hannað fyrir íslenskar aðstæður.

Kaupa stubbahús