Leiðbeiningar

Uppsetning stubbahúsins

Það er fljótlegt og einfalt að setja upp Stubbahús. Þú borar fyrst fyrir festingunni, kemur hólknum fyrir og herðir síðan skrúfuna neðst með öryggislyklinum til að festa það tryggilega.

Tæming stubbahúsins

Þegar komið er að tæmingu losar þú einfaldlega skrúfuna neðst á húsinu með öryggislykli sem fylgir húsinu. Þá togar þú húsið út og niður, tæmir það og smellir því aftur í festinguna.

Ef öryggislykill er týndur vinsamlegast hafðu samband.